Við heitum Aron Gabríel og Ísak Leví :)





Aron Gabríel fæddist á Landspítalanum föstudaginn 22. október 2004 kl. 11:42. Fæðingin gekk mjög vel og tók um 6 tíma.
Hann fæddist með dökk dökk brún augu og rosa mikið dökkt hár :) Karlmaður í lagi sko ;)

Ísak Leví fæddist uppá Skaga mánudaginn 12.apríl 2010 kl 23.50. Allt gekk mjög fljótt fyrir sig sem betur fer, en hann skaust út á þremur tímum:) Ísak fæddist með brúnt hár og gráblá augu og er alveg megakrútt.

Mamma okkar heitir Valdís og pabbi okkar heitir Daníel og við búum öll saman í Kópavoginum þar sem fer voða vel um okkur.







Knúsi Knús



Nöfnin okkar

Aron

Nafn úr biblíunni. Aron var bróðir Móse og talsmaður hans. Nafnið er líklega af hebreskum uppruna "has-on" sem merkir hinn sterki.

Gabríel

Nafn þetta er biblíunafn komið úr hebresku og merkir hetja guðs.
Gabríel er einn helsti af englum guðs og af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverkið.
Gabríel var erkiengill sem sagði Maríu mey að hún myndi eignast Jesús.

***

Ísak

Nafnið er Biblíunafn úr hebresku og merkir hlátur. Ísak var sonur Abrahams og Söru.

Leví

Er úr Biblíunni og þýðir sameinaður. Í Gamla testamentinu var Leví sonur ættföðurins Jakubs og konu hans Leu. í Nýja testamentinu er Leví annað nafn á postulinum Matteusi.